Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Vinnustaðir

Hvað persónuvernd á vinnustöðum varðar þarf að gæta samspils milli hagsmuna vinnuveitanda og einkalífs starfsfólks. Vinnuveitandi þarf oft að skrá og nota upplýsingar til að halda starfseminni gangandi, en starfsfólk á samt sem áður rétt á því að ekki sé gengið lengra en nauðsynlegt er.

Eftirlitsmyndavélar á vinnustöðum

Persónuverndarlögin gilda um eftirlitsmyndavélar á vinnustöðum.

Leit á starfsfólki

Leit á fólki og í fórum þeirra fellur ekki undir persónuverndarlögin nema haldin sé skrá um leitina.

Ráðningar- og starfssamningar

Tilgangurinn með öflun upplýsinga vegna ráðningar- og starfssamninga þarf að vera skýr og fylgja meginreglum persónuverndarlöggjafarinnar.

Skráning vinnuveitanda á persónuupplýsingum

Skráning vinnuveitanda á persónuupplýsingum um starfsmenn getur talist eðlilegur þáttur í starfsemi hans.

Tölvupóstur starfsfólks

Vinnuveitandi má ekki skoða einkatölvupóst starfsfólks. Einkatölvupóstur varðar persónuleg málefni starfsmannsins og tengist ekki starfseminni eða hagsmunum vinnuveitanda.

Vöktun með vinnuskilum starfsmanns

Vöktun með vinnuskilum er viðvarandi eða reglubundin vöktun sem fer fram til að hafa eftirlit með því að starfsmenn fari að fyrirmælum vinnuveitanda eða þeim lögum og reglum sem gilda um starfið og eftir atvikum til að meta einstaklingsbundið vinnu­framlag eða afköst.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820