Fara beint í efnið
Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Réttindi einstaklinga

Sérhver einstaklingur á að geta skilið hvaða upplýsingar eru skráðar um hann, í hvaða tilgangi þeirra er aflað og hvernig þær eru notaðar. Persónuverndarlöggjöfin byggir á þeirri meginhugmynd að einstaklingar eigi að halda yfirsýn yfir eigin upplýsingar, jafnvel þegar þær eru afhentar fyrirtækjum, stofnunum eða öðrum aðilum.

Þess vegna veita lögin einstaklingum ákveðin réttindi. Einstaklingur á til dæmis rétt á að vita hvort verið sé að vinna með upplýsingar um hann, fengið að sjá þær og fengið rangar upplýsingar leiðréttar. Við ákveðnar aðstæður getur fólk líka farið fram á að upplýsingum verði eytt, að notkun þeirra verði takmörkuð eða mótmælt vinnslu sem það telur ósanngjarna eða óþarfa. Einnig getur verið réttur til að fá upplýsingar afhentar á formi sem auðvelt er að flytja á milli ábyrgðaraðila.

Þessi réttindi eru mikilvæg vegna þess að upplýsingar um fólk geta haft raunveruleg áhrif á daglegt líf þess. Þær geta ráðið því hvernig þjónusta er veitt, hvaða ákvarðanir eru teknar og hvaða mynd er dregin upp af einstaklingi. Réttindin eiga því að hjálpa fólki að halda ákveðinni stjórn, spyrja spurninga og krefjast skýringa þegar þörf er á.

Markmiðið er að tryggja sanngirni, gagnsæi og traust. Þegar persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar af virðingu og ábyrgð styrkir það bæði réttindi einstaklinga og gæði þeirrar þjónustu sem þeir fá.

Réttur til upplýsinga

Einstaklingar eiga rétt á að fá upplýsingar um vinnslu, sé unnið er með persónuupplýsingar þeirra.

Réttur til aðgangs að persónuupplýsingum

Einstaklingur getur beðið fyrirtæki eða stofnun um afrit af persónuupplýsingum sem þau hafa um sig.

Réttur til leiðréttingar persónuupplýsinga

Einstaklingar eiga rétt á að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar um sig leiðréttar tafarlaust.

Réttur til eyðingar persónuupplýsinga

Einstaklingar hafa rétt til að krefjast þess að persónuupplýsingum þeirra verði eytt af vefsvæðum, gagnagrunnum eða öðrum kerfum, þegar ákveðin skilyrði eru uppfyllt.

Réttur til að flytja persónuupplýsingar

Einstaklingar eiga rétt á að fá persónuupplýsingar, sem þeir hafa afhent ábyrgðaraðila, á skipulögðu, almennu og tölvulesanlegu sniði, til að afhenda öðrum ábyrgðaraðila án hindrunar.

Réttur til að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga

Réttur til að mótmæla veitir einstaklingi heimild til að koma í veg fyrir að persónuupplýsingar verði notaðar eða unnar í ákveðnum tilgangi.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820