Markaðssetning gagnvart börnum
Fyrirtæki og stjórnvöld þurfa að hafa heimild til að vinna persónuupplýsingar. Bein markaðssetning getur talist til lögmætra hagsmuna og því getur verið heimilt að hafa samband við börn til að bjóða tiltekna vöru eða þjónustu.
Börn eiga hins vegar að njóta sérstakrar verndar þegar persónuupplýsingar þeirra eru notaðar í markaðssetningu. Ef um er að ræða persónuupplýsingar barna á að byggja á því sem er barni fyrir bestu. Notkun á persónuupplýsingum barna í markaðsskyni á sér t.d. stað með auglýsingum á samfélagsmiðlum, borðum á vefsíðum eða auglýsingum í tölvuleikjum.
Fyrirtæki og stjórnvöld eiga ekki að misnota þá staðreynd að börn kunna að vera síður meðvituð um hugsanlegar áhættur eða afleiðingar heldur en fullorðnir.
Þess vegna eiga hvers kyns upplýsingar og tilkynningar, þegar vinnsla beinist að barni, að vera á skýru og einföldu máli sem barnið getur auðveldlega skilið.
Ef barn eða forráðamaður andmæla markaðssetningu þarf að fara að þeirri ósk.
