Hvað eru heilbrigðisupplýsingar?
Heilbrigðisupplýsingar eru allar upplýsingar um líkamlegt og andlegt heilsufar einstaklinga, svo sem sjúkdómsgreiningar, lyfjanotkun, meðferðir, fötlun og niðurstöður rannsókna. Einnig allar heilsufarsupplýsingar sem eru skráðar um þig, hjá spítölum, heilsugæslunni eða einkarekinni heilbrigðisþjónustu.
Heilbrigðisupplýsingar teljast viðkvæmar persónuupplýsingar. Slíkar upplýsingar njóta sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlögum vegna þess hversu viðkvæmar þær eru og hvaða áhrif misnotkun þeirra getur haft á líf einstaklinga.
Til þess að mega vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar um annað fólk þarf að uppfylla ákveðin skilyrði.
Sjá nánar, hvenær má vinna með heilbrigðisupplýsingar.
