Lyfjaskortur
Um lyfjaskort er að ræða þegar apótek, lyfsalar eða heilbrigðisstofnun reyna að panta lyf hjá heildsala en það er ekki til á lager, þrátt fyrir að það eigi að vera fáanlegt á markaði. Þá er framboð lyfs ekki nægilegt til að anna eftirspurn eða þörf lyfjanotenda.
Lyfjastofnun hefur það hlutverk að hafa eftirlit með framboði lyfja þannig að lyfjaskortur hafi sem minnst áhrif á lyfjanotendur og heilbrigðiskerfið.

Lyfjaskortsfréttir
Lyfjastofnun gefur út fréttir um mikilvægustu tilvik lyfjaskorts hverju sinni

Mánaðarlegar samantektir
Samantekt á stöðu lyfjaskorts og áhrifa hans á lyfjanotendur og heilbrigðiskerfið
Tilkynna um lyfjaskort
Almenningur getur sent inn nafnlausar ábendingar um lyfjaskort
