Lyfjagát og aukaverkanir
Lyfjagát stuðlar að auknu öryggi við lyfjanotkun og nær yfir þau vísindi og starfsemi sem tengist greiningu, mati, skilningi og forvörnum gegn aukaverkunum eða hvers kyns öðrum vandamálum tengdum lyfja- eða bóluefnanotkun.
Áður en lyf kemur á markað hefur það verið prófað í hópum af takmarkaðri stærð og því hafa ekki allar aukaverkanir eða áhætta tengd lyfinu komið í ljós.
Með lyfjagát er öryggi lyfja sífellt metið og bætt eftir að lyf er komið á markað. Lyfjagát er öflugasta og oft eina leiðin til að uppgötva mjög sjaldgæfar aukaverkanir.
Niðurstöður lyfjagátar eru betri upplýsingar um lyfið og leiðbeiningar til heilbrigðisstarfsfólks, sjúklinga og aðstandenda sem minnka áhættu og auka ávinning af notkun lyfja.
Lyfjagát fer fram bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Lyfjastofnun tekur virkan þátt í nefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) um lyfjagát (PRAC). Náið evrópskt samstarf og sameiginlegur þekkingargrunnur gerir yfirvöldum kleift að bregðast skjótt við þegar þörf krefur.
