Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Bréf til heilbrigðisstarfsmanna (DHPC)

Þegar mikilvægar upplýsingar um öryggi lyfja þurfa að berast fljótt til heilbrigðisstarfsfólks senda markaðsleyfishafar út bréf til heilbrigðisstarfsmanna (Direct Healthcare Professional Communication, DHPC) í samvinnu við Lyfjastofnun Evrópu og Lyfjastofnun. Bréfin eru send samtímis í öllum löndum þar sem þörf er á.

DHPC bréf eru notuð til að miðla upplýsingum um:

  • Niðurfellingu eða afturköllun markaðsleyfis lyfs af öryggisástæðum

  • Mikilvægar breytingar á markaðsleyfum t.d. takmörkun á ábendingum, nýjum frábendingum, nýjum viðvörunum, breytingum á ráðlögðum skammti eða notkunarleiðbeiningum

  • Skorti á lyfjabirgðum

  • Gæðavandamálum tengdum framleiðslu lyfja

Metið er hverju sinni hvaða viðtakendur þurfa að fá bréfin og fer það eftir eðli umrædds lyfs og nýju upplýsinganna. Algengustu viðtakendurnir eru almennir læknar, sérfræðilæknar, hjúkrunarfræðingar, apóteks- og sjúkrahúslyfjafræðingar.

Sameiginlegt merki auðkennir fræðsluefni og bréf til heilbrigðisstarfsmanna

Lyfjastofnun og Frumtök hafa í samvinnu látið hanna merki sem ætlað er til að auðkenna annars vegar fræðsluefni sem er forsenda markaðsleyfis ákveðinna lyfja, og hins vegar bréf til heilbrigðisstarfsmanna. Flestir markaðsleyfishafar lyfja sem eru markaðssett á Íslandi eru aðilar að samkomulaginu. Merkið hjálpar þannig heilbrigðisstarfsfólki að þekkja sendingar með mikilvægum öryggisupplýsingum frá auglýsinga- og kynningarefni markaðsleyfishafa.

Lyfjastofnun og Frumtök hafa í samvinnu látið hanna merki sem ætlað er til að auðkenna annars vegar fræðsluefni sem er forsenda markaðsleyfis ákveðinna lyfja.

Lyfjastofnun hvetur þá markaðsleyfishafa sem ekki eru nú þegar aðilar að samkomulaginu að gerast þátttakendur, sjá leiðbeiningar.