Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Skiptiskrá og samheitalyf

Í mörgum tilvikum eru til nokkur lyf sem hafa sama virka innihaldsefnið og sömu verkun en nafn þeirra, útlit og verð eru mismunandi. Þegar lyfseðilsskyld lyf eru afgreidd í apótekum er notandanum því oft boðið að fá sambærilegan, ódýrari valkost þegar hann er til staðar. Þá er oftast um að ræða samheitalyf, sem er sama lyf frá öðrum framleiðanda.

„Já takk, ég þigg sama lyf frá öðrum framleiðanda.“

Þú getur í þessum tilfellum treyst því að fá sömu meðferð og læknirinn hefur ávísað. Lyfjastofnun hefur raðað lyfjum með sambærilega verkun á sérstakan lista sem apótek fara eftir þegar boðinn er sambærilegur, ódýrari valkostur.

Á þeim lista, svokallaðri skiptiskrá, er að finna upplýsingar um frumlyf og samheitalyf sem eru útskiptanleg. Enginn á að þurfa að bera hærri kostnað en nauðsynlegt er fyrir lyf, hvorki neytendur né samfélagið í heild sinni.

Boð um ódýrari lyf

Oft eru til nokkur lyf með sama virka efni og sömu verkun. Þau geta haft ólík heiti, útlit og verð. Þegar það á við ætti apótek að bjóða þér ódýrari valkost. Oftast er um að ræða samheitalyf, sem er sama lyf frá öðrum framleiðanda.

Þú getur treyst því að fá sömu meðferð og læknirinn ávísaði. Lyfjastofnun heldur skrá yfir jafngild lyf sem kallast skiptiskrá og apótekin fara eftir henni.

Ef þú afþakkar ódýrara lyf

Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands miðast við lægsta einingarverð í hverjum flokki. Í viðmiðunarverðflokkum eru bæði lyf sem Sjúkratryggingar taka þátt í að greiða og önnur án greiðsluþátttöku. Veljir þú dýrara lyf í viðkomandi flokki greiðir þú mismuninn.

Samheitalyf og frumlyf

Samheitalyf telst jafngilt frumlyfi þegar staðfest hefur verið að:

  • virka efnið sé það sama og í sama magni,

  • lyfjaformið sé það sama, til dæmis töflur, mixtúra eða augndropar,

  • líkaminn taki lyfið upp á sama hraða og í sama magni og frumlyfið.

Af hverju eru samheitalyf oftast ódýrari en frumlyf?

Styttra ferli við þróun samheitalyfja og minni kostnaður við rannsóknir og skráningu hafa þau áhrif að verð samheitalyfja er langoftast lægra en frumlyfja. Notkun samheitalyfja sparar því einstaklingum og samfélaginu umtalsverðar fjárhæðir.

Þegar lyfjafyrirtæki þróar nýtt lyf (frumlyf) liggja að baki því miklar rannsóknir og langt þróunarferli þar sem sýna þarf fram á verkun, gæði og öryggi lyfsins. Viðkomandi lyfjafyrirtæki fær einkaleyfi fyrir lyfið í allmörg ár og fær þannig tækifæri til að afla tekna á móti þeim kostnaði sem fór í þróun og skráningu lyfsins. Þegar einkaleyfið rennur út er öðrum fyrirtækjum heimilt að þróa, skrá og framleiða jafngild lyf með sama virka efninu. Þau lyf eru kölluð samheitalyf. Vegna þeirrar samkeppni sem skapast þegar samheitalyf koma á markaðinn lækkar verð lyfjanna.

Af hverju eru sams konar lyf með mismunandi nöfn?

Hver og einn lyfjaframleiðandi velur heiti fyrir sitt lyf sem er yfirfarið og samþykkt af lyfjayfirvöldum. Frumlyf ber oftast sérheiti en samheitalyf hafa ýmist sérheiti eða eru með samsett nafn úr heiti virka efnisins og nafni framleiðandans.

Mismunandi útlit sambærilegra lyfja

Lyf innihalda, auk virkra efna, hjálparefni sem gefa lyfjunum til dæmis lit, lögun og bragð. Hjálparefni geta verið mismunandi á milli lyfja og þar af leiðandi orðið til þess að lyfin líti öðruvísi út þó að um sé að ræða jafngild lyf með sömu verkun og sama öryggi.

Aukaverkanir

Öllum lyfjum getur fylgt ótilætluð verkun, svokölluð aukaverkun. Langoftast eru aukaverkanir af völdum virka efnisins og lyf sem innihalda sama virka efnið valda því oftast sömu eða svipuðum aukaverkunum. Um þekktar aukaverkanir er fjallað í kafla 4 í fylgiseðli lyfsins sem er í pakkningunni.

Ef þú tekur eftir aukaverkun lyfs eða breyttri verkun af lyfinu skaltu leita ráðlegginga hjá lækni eða lyfjafræðingi í apóteki. Ef heilbrigðisstarfsmaður hefur grun um alvarlega, nýja eða óvænta aukaverkun af notkun lyfs í störfum sínum er honum skylt að tilkynna það til Lyfjastofnunar.

Einföld ráð

  • Lærðu nafn virka efnisins í lyfjunum sem þú notar reglubundið. Nafn lyfsins og virka efnið eru tilgreind á pakkningu lyfsins. Ef þú ert óviss um hvert virka efnið er getur þú spurt lyfjafræðing, lyfjatækni, lækni eða hjúkrunarfræðing.

  • Láttu lækninn vita af þekktu ofnæmi. Læknirinn getur þá aðlagað ávísunina að þínum þörfum.

  • Sérlyfjaskrá inniheldur upplýsingar um öll markaðssett lyf á Íslandi. Þar er meðal annars að finna fylgiseðla lyfja og upplýsingar um ódýrasta valkostinn hverju sinni þegar fleiri lyf með sama virka innihaldsefni í sama magni eru fáanleg.

Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Þátt um ódýrasta valkost, skiptiskrá og fleira því tengt má finna í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar.