Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Öryggisupplýsingar

Markaðsleyfi ákveðinna lyfja er háð skilyrðum sem varða öryggi við notkun. Þar er um að ræða sértækar aðgerðir sem markaðsleyfishafi þarf að standa skil á til að draga úr áhættu og/eða tryggja rétta verkun við notkun þeirra.

Í mörgum tilfellum er m.a. um að ræða útgáfu öryggisupplýsinga fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga. Allt efni sem gefið er út vegna slíkra skilyrða er yfirfarið af Lyfjastofnun. Öryggisupplýsingar sem gefnar er út vegna slíkra skilyrða er auðkenndar með sérstöku merki fyrir mikilvægar öryggisupplýsingar, sjá hér að neðan.

Nauðsynlegt er að heilbrigðisstarfsfólk sem ávísar eða gefur viðkomandi lyf og sjúklingar/aðstandendur sem nota lyfin kynni sér viðkomandi leiðbeiningar sem snúa að útgefnum öryggisupplýsingum.

Lyfjastofnun gefur sér tvær vikur til að ganga úr skugga um að öll viðeigandi gögn fylgi umsókn um mat á öryggisupplýsingum lyfja.

Í kjölfarið gefur Lyfjastofnun sér allt að 60 daga til að ljúka yfirferð öryggisupplýsinganna.

Leiðbeiningar um gerð öryggisupplýsinga og leiðbeiningar um birtingu og niðurfellingu öryggisupplýsinga voru síðast uppfærðar í desember 2024.

Sótt um mat á öryggisupplýsingum

Umsóknareyðublað um mat á öryggisupplýsingum (docx)

Markaðsleyfishöfum er sérstaklega bent á að nota ávallt gildandi eyðublað umsóknar um mat á öryggisupplýsingum. Í gildi er eyðublað sem uppfært var í desember 2024. Vinsamlega notið ekki eldri útgáfur sama eyðublaðs við umsókn um mat á öryggisupplýsingum.


Merking örygg­is­upp­lýs­inga til heil­brigð­is­starfs­fólks

Lyfjastofnun og Frumtök hafa í samvinnu látið hanna merki sem ætlað er til að prenta eða líma á sendingar til lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna, þegar efni til dreifingar er samkvæmt kröfu eða með sérstöku samþykki Lyfjastofnunar.

Annars vegar er öryggisupplýsingar sem markaðsleyfishafa er skylt að útbúa samkvæmt skilyrðum í markaðsleyfi lyfs og/eða skuldbindingum í áhættustjórnunaráætlun (RMP) og varða mikilvæg atriði um öryggi lyfja. Hins vegar er bréf til heilbrigðisstarfsmanna (Direct Healthcare Professional Communication; DHPC).

Lyfjastofnun og Frumtök hafa gert með sér samkomulag um notkun merkisins sem markaðsleyfishafar lyfja á Íslandi eru hvattir til að gerast aðilar að, en með því skuldbinda þeir sig til að nota merkið ávallt til að auðkenna slíkar sendingar.

Lyfjastofnun mælir með að merkið verði einnig notað í bréfum til heilbrigðisstarfsfólks sem yfirfarin eru hjá Lyfjastofnun. Þetta á við hvort sem um er að ræða einstök bréf (DHPC) eða fylgibréf með sérstökum öryggisupplýsingum. Eftir sem áður skal efnið alltaf notað á umslög, hvort sem bréfin sjálf eru auðkennd á sama hátt eða ekki. Minnt er á að einungis má nota merkið þegar um er að ræða efni sem dreift er að kröfu eða með sérstöku samþykki Lyfjastofnunar.

Aðild að samkomulaginu er opin öllum markaðsleyfishöfum lyfja á Íslandi

Öllu markaðsleyfishöfum lyfja á Íslandi er velkomið að gerast aðilar að þessu samkomulagi. Ósk um það þarf að berast Lyfjastofnun á netfangið lyfjastofnun@lyfjastofnun.is