Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Hvað getur komið í ljós við ómskoðun?

Í ómskoðun er hægt að greina ýmis frávik í þroska og líkamsbyggingu fósturs. Sum þeirra sjást snemma á meðgöngu en önnur koma ekki í ljós fyrr en síðar.  

Við 12–14 vikna ómskoðun er hægt að greina suma alvarlega byggingargalla. Við 19–20 vikur er fóstrið orðið stærra og hægt að skoða líffæri þess nánar.  

Meðal frávika sem geta komið í ljós eru:   

  • Heila- og miðtaugakerfisgallar, til dæmis frávik í þroska heila eða hryggjar.  

  • Hjartagallar, sem geta verið misalvarlegir og kallað á sérhæfða hjartaómskoðun.  

  • Kviðveggsgallar, þar sem hluti líffæra í kviðarholi er utan kviðveggjar.  

  • Þvagfæra- og nýrnagallar, sem geta haft mismikil áhrif á starfsemi nýrna og þvagfæra.  

  • Frávik í útlimum og beinagrind, til dæmis klumbufætur eða frávik í vexti beina.  

  • Skarð í vör, sem getur komið fram eitt og sér eða ásamt öðrum frávikum.  

  • Fósturbjúgur, þar sem óeðlileg vökvasöfnun verður í líkama fósturs.  

Alvarleiki þessara frávika er mismunandi. Sum þarfnast engrar sérstakrar meðferðar, önnur geta kallað á meðferð eftir fæðingu og sum geta haft veruleg áhrif á heilsu eða lífslíkur barns.

Getur ómskoðun greint litningafrávik?

Ómskoðun getur stundum leitt í ljós vísbendingar um litningafrávik, til dæmis ef ákveðin frávik sjást í þroska eða líkamsbyggingu fósturs. Ekki er þó hægt að staðfesta litningafrávik með ómskoðun einni saman.   
Fósturerfðaskimun (NIPT) metur líkur á ákveðnum litningafrávikum. Ef ástæða er til getur verið boðið upp á frekari rannsóknir, svo sem fylgjuvefssýni eða legvatnsástungu.  

Hvenær er  hjartaómskoðun gerð á fóstri?

Hjartaómskoðun er sérhæfð rannsókn þar sem hjarta fósturs er skoðað nánar af barnahjartalækni.  

Rannsóknin getur meðal annars komið til greina ef:

  • Grunur vaknar um hjartagalla í almennri ómskoðun.

  • Annað foreldri eða fyrra barn hefur greinst með meðfæddan hjartagalla. 

  • Ákveðnir erfðasjúkdómar eða aðrir áhættuþættir eru til staðar.

  • Frávik koma fram í hjartslætti fósturs.  

Læknir eða ljósmóðir metur þörf fyrir rannsóknina og sér um tilvísun þegar við á.

Hvað ef fylgjan er lágsæt?

Við 19–20 vikna ómskoðun er staðsetning fylgju skoðuð.  
Stundum liggur fylgjan neðarlega í leginu eða nálægt leghálsi. Í mörgum tilvikum færist hún fjær leghálsinum eftir því sem legið stækkar.  
Ef fylgjan er lágsæt getur verið þörf á endurtekinni ómskoðun síðar á meðgöngu til að kanna staðsetningu hennar.   

Hvenær þarf að fylgjast sérstaklega með vexti fósturs?

Stundum er þörf á fleiri ómskoðunum til að fylgjast með vexti og líðan fósturs.

Það getur meðal annars átt við ef:

  • Grunur er um að fóstrið vaxi hægar eða hraðar en búast mætti við. 

  • Legvatnsmagn er meira eða minna en eðlilegt er. 

  • Móðir er með sykursýki eða ákveðna aðra sjúkdóma. 

  • Um fjölburaþungun er að ræða.  

Við slíkar skoðanir er meðal annars hægt að meta stærð fósturs, legvatnsmagn og blóðflæði í ákveðnum æðum með svokölluðum flæðismælingum.

Ómskoðun í fjölburaþungun

Ef um tvíbura eða fleiri fóstur er að ræða getur verið þörf á tíðari ómskoðunum.  
Í upphafi meðgöngu er meðal annars kannað hvort fóstrin deili fylgju og hvernig belgir þeirra liggja. Þessar upplýsingar hafa áhrif á skipulag eftirlits síðar á meðgöngunni.  
Tíðni ómskoðana fer eftir tegund fjölburaþungunar og því hvort einhverjir áhættuþættir eru til staðar.

Þrívíddarómskoðun

Við hefðbundna ómskoðun eru notaðar tvívíðar myndir til að skoða fóstrið og meta þroska þess.  
Í ákveðnum tilvikum getur þrívíddarómskoðun veitt viðbótarupplýsingar, til dæmis þegar þörf er á að skoða ákveðin frávik í andliti eða líkamsbyggingu fósturs.  
Þrívíddarómskoðun er ekki hluti af reglubundnum ómskoðunum og er fyrst og fremst notuð þegar sérstök ástæða er til.