Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fósturerfðaskimun (NIPT)

NIPT er blóðrannsókn hjá barnshafandi konu þar sem erfðaefni frá fylgju er rannsakað til að meta líkur á ákveðnum litningafrávikum hjá fóstri.  

Rannsóknin metur líkur á frávikum í fjölda litninga 13, 18 og 21, meðal annars Downs-heilkenni (þrístæðu 21). Í sumum tilvikum eru kynlitningarnir X og Y einnig skoðaðir.

  • Rannsóknin er gerð með einfaldri blóðsýnatöku.

  • Blóðsýnatakan eykur ekki hættu á fósturmissi.

  • Niðurstöður liggja yfirleitt fyrir eftir um 10 daga.  

NIPT er skimun en ekki greining. Það þýðir að rannsóknin metur líkur á litningafrávikum en getur ekki staðfest hvort þau séu til staðar. Ef niðurstöður benda til aukinna líka á fráviki er boðið upp á frekari rannsóknir.  

Hver er munurinn á NIPT og fósturgreiningu?

NIPT – fósturerfðaskimun

Fósturgreining

Blóðsýni úr móður

Sýni úr fylgju eða legvatni

Metur líkur á ákveðnum litningafrávikum

Getur staðfest ákveðin erfðafrávik

Blóðsýnatakan eykur ekki hættu á fósturmissi

Lítil hætta á fósturmissi vegna sýnatöku

Niðurstöður eftir um 10 daga

Niðurstöður eftir nokkra daga til nokkurra vikn

Nánari upplýsingar

Engin rannsókn getur greint öll erfðafræðileg frávik hjá fóstri. Ljósmóðir eða læknir getur útskýrt hvaða rannsóknir koma til greina og hvað niðurstöðurnar geta sagt til um.  

Í fræðsluefninu Erfðarannsóknir á fósturstigi – fósturerfðaskimun (NIPT) og fósturgreining er að finna ítarlegri upplýsingar um rannsóknaraðferðir, niðurstöður og takmarkanir þeirra.