Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Fjarlækningar

Heilbrigðisstofnun Suðurlands er fyrsti opinberi samstarfsaðili Fjarlækninga. Samstarfið er eins árs tilraunaverkefni og til að byrja með verður þjónustan einungis í boði fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum.

Markmið samstarfsins er að bæta aðgengi að læknisþjónustu, stytta biðtíma og skapa meira svigrúm fyrir heilsugæsluna til að sinna flóknari verkefnum. Stefnt er að því að útvíkka þjónustuna til allra heilsugæslustöðva HSU á næstunni og síðar til fleiri heilsugæslustöðva um land allt.

Þjónustan er nú aðeins í boði fyrir skjólstæðinga HSU í Vestmannaeyjum.

Opna þjónustu

Heimasíða Fjarlækninga

Ferlið í gegnum Fjarlækningar