Kaupendur
Opinber innkaup eru kaup ríkis, sveitarfélaga og annarra opinberra aðila á vörum, þjónustu og framkvæmdum.
Markmið opinberra innkaupa eru m.a. að tryggja hagkvæma nýtingu opinbers fjár, stuðla að virkri samkeppni og tryggja fyrirtækjum jafnt aðgengi að viðskiptum við hið opinbera. Opinber innkaup byggja jafnframt á meginreglum um gagnsæi, jafnræði og meðalhóf til að efla traust á ráðstöfun opinbers fjár.
Í opinberum innkaupum er farið eftir lögum um opinber innkaup.
