Hvernig kaupi ég inn?
Opinberir aðilar þurfa að bjóða út kaup á vörum, þjónustu og framkvæmdum þegar áætlað virði samnings fer yfir viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt lögum um opinber innkaup
Kanna hvort vara eða þjónusta falli undir miðlægan samning Fjársýslunnar.
Hægt er að skoða alla miðlæga samninga Fjársýslunnar með því að smella hér.
Ef miðlægur samningur er til staðar skal fylgja ákvæðum hans.
Hægt er að hafa til hliðsjónar leiðbeiningar um innkaup innan miðlægra samninga með því að smella hér.
Ef enginn miðlægur samningur er til staðar skal meta áætlað virði innkaupanna.
Ef virðið er undir viðmiðunarfjárhæðum gilda reglur um innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum.
Ef virðið er yfir viðmiðunarfjárhæðum ber að bjóða innkaupin út (fara í útboð).
Upplýsingar um innkaupaferli Fjársýslunnar má skoða með því að smella hér
Hægt er að senda inn verkbeiðni til innkaupasviðs með því að smella hér
Þegar áætlað verðmæti innkaupa er undir viðmiðunarfjárhæðum gilda einfaldari reglur en við innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum. Kaupandi þarf þó ávallt að gæta að hagkvæmni, samkeppni, jafnræði og gagnsæi við framkvæmd innkaupanna.
Almennt ber að afla tilboða eða verðupplýsinga frá eins mörgum aðilum og hægt er eftir því sem aðstæður á markaði leyfa. Markmiðið er að tryggja að opinbert fé sé nýtt með hagkvæmum hætti og að fyrirtækjum sé gefinn raunhæfur kostur á að bjóða í verkefni.
Við undirbúning innkaupa þarf einnig að gæta þess að tæknilýsingar séu málefnalegar, skýrar og í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup. Tæknilýsingar mega ekki takmarka samkeppni umfram það sem nauðsynlegt er.
Nánari upplýsingar er að finna í 24. gr. laga um opinber innkaup um innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum og 49. gr. laganna um tæknilýsingar.
Við innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum ber að bjóða innkaupin út. Ef kaupandi er aðili að miðlægum samningum Fjársýslunnar og gildandi samningur nær til viðkomandi vöru eða þjónustu skulu innkaupin fara fram í samræmi við ákvæði þess samnings. Að öðrum kosti skal fara í útboð samkvæmt lögum um opinber innkaup.
Ríkisaðilum í A1- og A2-hluta ríkissjóðs ber að annast innkaup sín í gegnum Fjársýsluna samkvæmt reglugerð um fyrirkomulag innkaupa ríkisins. Fjársýslan sér um framkvæmd útboða í samráði við kaupanda og veitir ráðgjöf um undirbúning og framkvæmd innkaupa.
Sveitarfélög og aðrir opinberir aðilar geta annaðhvort annast innkaup sín sjálf eða leitað til aðila sem veita innkaupaþjónustu. Þeim er jafnframt heimilt að leita til Fjársýslunnar eftir aðstoð við innkaup.
Fjársýslan annast framkvæmd útboða í samráði við kaupanda og veitir ráðgjöf um undirbúning og framkvæmd innkaupanna.
Ríkisaðilum í A1- og A2-hluta ríkissjóðs ber að fara með innkaupin sín í gegnum Fjársýsluna samkvæmt reglugerð um fyrirkomulag innkaupa ríkisins. Fjársýslan annast framkvæmd útboða í samráði við kaupanda og veitir ráðgjöf um undirbúning og framkvæmd innkaupanna.
Ef rammasamningur Fjársýslunnar er til staðar fara innkaupin fram samkvæmt ákvæðum hans, annaðhvort með beinum kaupum eða með örútboði eftir því sem við á. Í þeim tilvikum geta kaupendur framkvæmt innkaupin á grundvelli rammasamningsins án aðkomu Fjársýslunnar.
Sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum er heimilt að sinna sínum innkaupum sjálf eða leita til annarra aðila sem sinna innkaupaþjónustu. Þeim er heimilt að leita til aðila á einkamarkaði en heimilt að leita til Fjársýslunnar eftir aðstoð við innkaup.
