Viðmiðunarfjárhæðir
Viðmiðunarfjárhæðir eru fjárhæðarmörk sem ákvarða hvort skylt sé að bjóða innkaup út. Þegar áætlað verðmæti samnings nær eða fer yfir viðmiðunarfjárhæðir gilda reglur um innkaup yfir viðmiðunarfjárhæðum.
Við mat á áætluðu verðmæti samnings skal miða við heildarverðmæti innkaupanna.
Ekki er heimilt að skipta innkaupum upp í þeim tilgangi að komast hjá útboði.
Viðmiðunarfjárhæð vegna skyldu til útboðs innanlands fyrir verksamninga er 75.800.000 kr.
Fyrir vöru- og þjónustusamninga gilda sömu viðmiðunarfjárhæðir innanlands og vegna útboðsskyldu á Evrópska efnahagssvæðinu.
