17. ágúst 2026
Sérveiðileyfi 2026/2027
Fiskistofa vekur athygli á því að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár. Núgildandi sérleyfi falla úr gildi þann 31. ágúst næstkomandi.
Sótt er um leyfin í stafrænu umsóknarkerfi. Til þess að opna umsóknarkefið þarf að nota rafræn skilríki útgerðaraðila. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um.
Eftirtalin leyfi eru þau sem sækja þarf um sérstaklega:
Leyfi til frístundaveiða (Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi ferðaskipuleggjandaleyfi frá Ferðamálastofu og þeir bátar sem hyggjast veiða á sjóstöng án fénýtingar aflans þurfa farþegaleyfi Samgöngustofu)
* Með umsókn um stjörnumerkt leyfi skal fylgja samningur um vinnslu í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða. Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.
Ef aðilar lenda í vandræðum með umsóknarferlið er hægt að fá nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á fiskistofa@fiskistofa.is.

