Nú eru liðin sjö ár frá hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar, en síðast er vitað um ferðir hans í Dyflinni á Írlandi þann 9. febrúar 2019. Rannsókn málsins er á forræði írsku lögreglunnar, en í dag sendi hún frá sér fréttatilkynningu vegna þessa. Þar er aftur kallað eftir upplýsingum frá almenningi og minnt á að málið er enn óupplýst.