Fara beint í efnið

12. desember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Birtingu niðurstaðna matsskylduákvarðana í prentmiðlum hætt

Vakin er athygli á því að frá og með 1. janúar 2025 verða niðurstöður matsskylduákvarðana Skipulagsstofnunar ekki birtar í prentmiðlum. Niðurstöðurnar verða eingöngu birtar í Skipulagsgátt og á vef Skipulagsstofnunar. Bent er á að hægt er að vakta mál í Skipulagsgáttinni og fá tilkynningu í tölvupósti hvert sinn sem matsskylduákvarðanir liggja fyrir, hvort sem er á afmörkuðum svæðum eða á landinu öllu.