Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. janúar 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar vegna legu háspennulína

Skipulagsstofnun staðfesti 21. janúar 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. desember 2024.

Í breytingunni felst leiðrétting á legu Grundarfjarðarlínu 1 og 2 í aðalskipulagsgögnum.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.