10000 leitarniðurstöður
Fréttabréf Stafræns Íslands í apríl 2025
Frétt
Í gær fór fram vinnustofa í Vestmannaeyjum undir yfirskriftinni: Aðgerðir gegn ofbeldi í Vestmannaeyjum og tóku um 70 fagaðilar þátt.
Nú er kominn sá tími árs þegar sólin á Íslandi er nægilega sterk til að valda húðbruna. Það er vel þekkt að húðbruni eykur líkur á húðkrabbameini síðar á ævinni og því er fólk hvatt til að huga að sólarvörnum. Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir útfjólubláum geislum sólar og því þarf að vernda þau sérstaklega vel.
Framkvæmdir við nýja göngu- og hjólabrú við Sæbraut í Reykjavík eru í fullum gangi.
Tjaldsvæðin í og við þjóðskóga landsins eru nú að opnast eitt af öðru. Opið verður um helgina í Selskógi Skorradal, við Reykjarhól í Varmahlíð Skagafirði, í Ásbyrgi, Hallormsstaðaskógi og Þjórsárdal. Í Vaglaskógi er reiknað með að opna 23. maí.
Stafrænt Ísland heldur áfram að þróa og bæta stafrænar lausnir með reglulegum uppfærslum á bæði kjarnaþjónustum og einstökum stafrænum þjónustum. Með nýjustu uppfærslunni kynnum við bæði nýja virkni og viðbætur og lagfæringar sem miða að því að auka öryggi, bæta notendaupplifun og einfalda þjónustuferla fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við söluauglýsingu á gámi sem er á fjölda sölusíðna inn á Facebook.
Útför Magnúsar Einarssonar, fyrrverandi yfirlögregluþjóns, var gerð frá Árbæjarkirkju í gær og sendum við fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.