Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli, sem snýr að innflutningi á rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa. Þrír þeirra voru handteknir í viðamiklum aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Tollgæslunnar um miðjan mánuðinn líkt og áður hefur komið fram, en sá fjórði var handtekinn í síðustu viku.