Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. ágúst 2025

Staðfesting á breytingu aðalskipulags Flóahrepps vegna Mosató 3, aukið byggingarmagn

Skipulagsstofnun staðfesti, 26. ágúst 2025, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017 - 2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. júní 2025.

Í breytingunni felst fjölgun gistirýma um 2 og hámarksbyggingarmagn er aukið úr 3.000 m2 í 3.700m2.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.