10000 leitarniðurstöður
Lýðheilsuvísar Reykjavíkurborgar voru kynntir í fyrsta sinn í dag. Þeir byggja á lýðheilsuvísum Embættis landlæknis en til viðbótar hefur borgin skilgreint fleiri vísa sem snúa m.a. að skipulagi, samgöngum og loftslagsmálum.
Heilbrigðisupplýsingasvið hjá embætti landlæknis óskar eftir að ráða teymisstjóra í teymi rafrænna upplýsingakerfa en sviðið hefur yfirumsjón með innri upplýsingakerfum embættisins. Starfið felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri vél- og hugbúnaðarkerfa og þróun rafrænna upplýsingakerfa og rafrænna veflausna.
Upplýsingar um áætlun vikunnar varðandi bólusetningar við COVID-19 hér á landi, verða framvegis birtar á mánudögum á vef embættis landlæknis. Í viku 7, 15.- 21. febrúar, verða tæplega 6 þúsund einstaklingar bólusettir.
Sóttvarnalæknir hefur nú birt gagnvirkt mælaborð með upplýsingum um valda smitsjúkdóma sem eru vaktaðir samkvæmt sóttvarnalögum.
Íslenskt táknmál, ÍTM, er þema síðasta tölublaðs Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, á nýliðnu ári.
Sýslumenn eru fyrsta stofnunin sem færðist í heild sinni yfir á Ísland.is. Vefsvæðinu syslumenn.is var lokað í maí 2021 og þá hafði allt efni vefsins verið flutt á nýja lendingarsíðu fyrir sýslumenn á Ísland.is.
Hópur sænskra skógfræðinema á öðru ári við sænska landbúnaðarháskólann SLU í Umeå hefur verið á ferð hér á landi síðustu daga og skoðað skóga og skógrækt. Nemarnir læra ýmsar hliðar skógræktar, úrvinnslu og umhirðu skóga og hljóta gráðuna jägermästare sem samsvarar gráðu skógfræðings á Íslandi en á sér margra alda rætur.
Þann 6. desember sl. barst Embætti landlæknis ábending um alvarlega stöðu sem skapast hafði á bráðamóttöku Landspítalans. Embættið brást við með því að hefja samdægurs hlutaúttekt á stöðu mála, með heimsóknum, rýni á gögnum og viðtölum við starfsfólk og stjórnendur.
Áfram eru tafir á afgreiðslu mála hjá embætti landlæknis.
Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið rannsóknin Heilsa og líðan sem lögð verður fyrir í fimmta sinn nú í októbermánuði.