„Ég hef starfað hér í 35 ár og hálfu ári betur. Það hefur langoftast verið bæði gaman og gefandi,“ segir Ingvar Teitsson gigtarlæknir sem lætur nú af störfum eftir farsælan feril við Sjúkrahúsið á Akureyri. Ingvar hefur sinnt sjúklingum með gigtarsjúkdóma og sykursýki.