Stærsta verkefni Hollvinasamtaka SAk til þessa lokið á 10 ára afmæli samtakanna.
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) afhentu Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) í dag með formlegum hætti svonefnda hryggsjá (Brain-lab). Um er að ræða eins konar leiðsögutæki fyrir stórar aðgerðir á hryggsúlunni. Tækið var tekið í notkun um áramótin en afhent með formlegum hætti nú. Það kostaði 40 milljónir króna.