Ný tilkynningagátt um öryggisatvik – <a href="https://oryggisbrestur.island.is/">oryggisatvik.island.is</a> – hefur verið opnuð en gáttin auðveldar stofnunum og fyrirtækjum að tilkynna um öryggisatvik sem upp kunna að koma í rekstri þeirra. Gáttin er samvinnuverkefni Persónuverndar, Póst- og fjarskiptastofnunar/CERT-IS og Lögreglunnar undir forystu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.