Vegna fréttar Morgunblaðsins um greiðslur fyrir blóðsýnatökur vilja Sjúkratryggingar árétta að
Landspítali annast blóðsýnatökur fyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en rannsóknarstofan
Sameind annast þessa þjónustu fyrir hönd einkareknu heilsugæslustöðvanna, en af fréttinni mátti ráða
að það væri starfsfólk heilsugæslustöðvanna sjálfra. Málið er nú í skoðun hjá Sjúkratryggingum.