Nú þegar áramótin eru fram undan er ekki úr vegi að rifja upp nokkur mikilvæg atriði sem snúa að skoteldum. Í reglugerð um skotelda segir t.d. að á því tímabili sem almenn notkun skotelda er leyfð, 28. desember til 6. janúar, er meðferð þeirra þó alltaf bönnuð frá kl. 22.00 til kl. 10.00 daginn eftir að undanskilinni nýársnótt.