Fara beint í efnið

Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd

Síðast uppfært 22. júní 2026: Breytingasaga

    Inngangur

    Hér er að finna verklag um móttöku fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Verklagið er samvinnuverkefni Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Barna- og fjölskyldustofu, Mennta- og barnamálaráðuneytisins, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Ríkislögreglustjóra og barnaverndarþjónustna Suðurnesja og Reykjavíkur.

    Verklagið tekur mið af ákvæðum laga um útlendinga nr. 80/2016 (hér eftir lög um útlendinga), reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, barnaverndarlaga nr. 80/2002 (hér eftir barnaverndarlög), reglugerð um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd nr. 56/2004 og lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins nr. 19/2013 (Barnasáttmálinn). Verklagið er aðgerð í framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023-2027 og nær til fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd.

    Verklaginu er skipt í tvo hluta; A. hluti þegar barn kemur eitt á ferð og B. hluti þegar barn kemur í fylgd fullorðins aðila sem er ekki foreldri eða forsjáraðili. Að auki er að finna umfjöllun um aldursgreiningarferlið hjá Útlendingastofnun. Þá fylgir verklaginu umfjöllun um mismunandi málsmeðferðir hjá Útlendingastofnun en mál fylgdarlausra barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd eru ólík eftir málsmeðferð.

    Verklag um fylgdarlaus börn sem eru umsækjendur um dvalarleyfi hér á landi án þess að vera umsækjendur um alþjóðlega vernd er í endurskoðun en styðjast má við eftirfarandi verklag: verklag-fylgdarlaus-born-lokaeintak-BVS.pdf