Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Hægt er að hefja fyrirlögn prófanna frá kl. 8:00 til 14:30 alla virka daga innan fyrirlagnartímabils. Gert er ráð fyrir að próffyrirlögnin í heild sinni rúmist innan 80-90 mínútna en sjálf prófúrlausnin mun þó taka langflesta nemendur mun skemmri tíma eða um 40 – 60 mínútur. Próftíminn er 80 mínútur en gefnar eru auka 10 mínútur fyrir lestur á leiðbeiningum og því lokast prófakerfið sjálfkrafa eftir 90 mínútur og skilar inn úrlausnum nemenda.