Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Það er mikilvægt að nemendur fái upplýsingar um tilgang og mikilvægi þátttöku þeirra í stöðu- og framvinduprófunum. Skilaboðin geta verið á þessa leið en skólum er frjálst að bæta inn öðrum upplýsingum sem varðar fyrirkomulag framkvæmdar í skólanum sjálfum:

    Kæru nemendur,

    Í mars verða stöðu- og framvindupróf Matsferils, í stærðfræði og lesskilningi lögð fyrir. Tilgangur prófanna er að afla og veita ykkur upplýsingar um stöðu ykkar í þessum greinum. Upplýsingarnar nýtast einnig kennurunum til að aðlaga kennslu sína að þörfum nemenda sinna og bregðast rétt við, til dæmis þegar nemendur þurfa meiri aðstoð eða áskoranir í námi. Þess vegna er það mjög mikilvægt að þið leggið ykkur fram og gerið ykkar allra besta.

    Prófin verða opin í fjórar vikur og skipuleggur skólinn, í samráði við kennara, hvenær nemendur taka prófin. Prófin eru lögð fyrir rafrænt og þau krefjast ekki sérstaks undirbúnings. Það er því ekkert stress og munið bara að gera ykkar besta.