Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Til að nálgast útprentanleg notandanöfn og lykilorð fyrir nemendur þarf kennari að skrá sig inn í stafrænt viðmót Matsferils á matsferill.mms.is. Kennarar geta prentað aðgangsupplýsingarnar til dæmis deginum fyrir próf en mikilvægt er að geyma þær með tryggum hætti og dreifa þeim ekki til nemenda fyrr en á prófdegi, rétt áður en próf hefst.