Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Fyrirlagnartímabil stöðu- og framvinduprófanna í lesskilningi og stærðfræði eru fjórar vikur sem falla að jafnaði allar innan marsmánaðar. Þar sem fyrirlagnartímabilið er rúmt hafa skólar töluvert svigrúm til að skipuleggja dagsetningar prófa eftir því hvað hentar best. Til dæmis er sá möguleiki fyrir hendi að skipta árgangi í tvennt og láta nemendur taka prófið sinn hvorn daginn og eins er hægt að leggja prófin fyrir í minni hópum, til dæmis fyrir nemendur sem þurfa meiri hvatningu og stuðning við próftökuna. Skólar eru hvattir til að hefja fyrirlögn snemma innan tímabilsins og nýta þar með sveigjanleikann sem langt fyrirlagnartímabil veitir.