Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Prófin verða lögð fyrir í stafrænu prófakerfi en til að undirbúa nemendur fyrir próftöku hafa verið útbúin sýnispróf. Sýnisprófin eru sniðin að mismunandi aldri, annars vegar fyrir lesskilning og hins vegar stærðfræði. Þau verða opin og aðgengileg öllum en hægt verður að fara í gegnum þau eins oft og hver vill eða þarf.

    Tilgangur sýnisprófanna er að kynna og þjálfa próftöku í stafrænu umhverfi. Þar er hægt að sjá uppsetningu prófatriða eins og lestexta með fjölvalsspurningum eða stærðfræðidæmi með opnum svörum þar sem próftaki skráir svar í svarglugga. Þar má einnig finna stafræn verkfæri og aðgengistól. Hægt verður að velja bakgrunnslit og stækka og minnka letur viðmóts. Sýnisprófunum er ekki ætlað að þjálfa nemendur í efnistökum prófanna.

    Lögð er áhersla á að próftaki fái tækifæri til að prófa öll þessi hjálpartæki sem eru í boði innan prófakerfisins, átta sig á því hvar þau eru staðsett og læra hvernig þau nýtast við próftöku, áður en til hennar kemur. Kennarar eru hvattir til að fara í gegnum sýnisprófin, fyrst sjálfir og svo með nemendum sínum þar sem öryggi við próftöku í stafrænu umhverfi getur minnkað álag og hjálpað nemendum að einbeita sér að prófverkefnunum. Sýnisprófin er að finna á synisprof.mms.is þar sem kennarar og nemendur geta valið viðeigandi próf til að æfa sig fyrir próftöku.