Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Nemendur sem njóta heimakennslu skulu samkvæmt reglugerð um heimakennslu á grunnskólastigi vera skráð í viðkomandi þjónustuskóla (tiltekins grunnskóla í sveitarfélagi). Þar sem prófin þurfa að fara fram við svipaðar aðstæður á landsvísu þá er eingöngu heimilt að taka prófin í skólahúsnæði og skal fyrirlögn prófanna því fara fram í þjónustuskóla nemandans.