Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Skólastjóri hefur umsjón með og ber ábyrgð á að allir nemendur séu skráðir í réttan hóp í Nemendagrunni en gögn eru keyrð úr grunninum í Matsferil. Ef nemanda vantar í hóp, eða aðrar upplýsingar varðandi hópinn eru ekki réttar, skal hafa samband við skólastjóra. Jafnframt þarf skólastjóri að tryggja að kennarar sem leggja prófin fyrir séu komnir með aðgang að Matsferli og skráðir á rétta hópa. Kennari skráir nemendur í sínum hópi í próf á prófdegi í Matsferli (sjá nánar í kaflanum „Fyrirlögn prófa“).