Fara beint í efnið

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Undirbúningur undir fyrirlögn

    Góður undirbúningur leggur grunninn að vel heppnaðri fyrirlögn. Í þessum hluta er fjallað um helstu atriðin sem huga þarf að og hér má finna gátlista sem gott er að hafa til hliðsjónar á meðan á undirbúningi stendur.

    Spurningar í prófum og matstækjum í Matsferli verða notaðar í nokkur ár. Stefnt er að því að notkunartími þeirra verði um fimm til sjö ár. Ástæða þessa er annars vegar að mikil krafa er gerð um gæði prófanna og hins vegar að mikil vinna felst í því að þróa viðmið um námsframvindu og einkunnakvarða sem endurspegla það sem nemendur kunna og geta. Því er mikilvægt að þó svo kennarar geti séð einstakar spurningar eða prófverkefni að þeir haldi þeirri vitneskju fyrir sig og dreifi ekki upplýsingum um prófatriðin.

    Öll verkefni í stöðu- og framvinduprófum eru eign Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og er óheimilt að afrita þau með nokkrum hætti. Textar í lesskilningsprófi eru birtir með leyfi höfunda/rétthafa. MMS hefur fengið heimild til að nýta þá við mat á stöðu nemenda en hefur ekki rétt til að dreifa þeim með öðrum hætti. Myndir eru ýmist teiknaðar sérstaklega fyrir prófin eða birtar með leyfi eigenda.