Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði
Reglubundin fyrirlögn stöðu- og framvinduprófa í stærðfræði gefur skólum, forsjáraðilum og nemendunum sjálfum upplýsingar um stöðu og þróun í stærðfræðinámi þeirra. Niðurstöður prófanna fela í sér vísbendingar um almenna færni nemandans í stærðfræði samkvæmt mikilvægum færniþáttum og flokkum inntaks í aðalnámskrá grunnskóla: tölum og reikningi, algebru, tölfræði og líkindum svo og rúmfræði og mælingum.
Stærðfræðinám á grunnskólastigi felur í sér grundvallarfærni fyrir nútímasamfélag. Góð færni í stærðfræði opnar dyr til samfélagsþátttöku og frekara náms en slök færni getur orðið að hindrun sé ekki gripið inn í. Góð færni felst meðal annars í skilningi og þekkingu á hugtökum sem og því að beita hugtökum eða aðferðum til að leysa stærðfræðileg og rauntengd viðfangsefni. Hluti af því reynir á að greina, túlka og rökstyðja til að komast að niðurstöðu. Góð færni er einnig háð talnaskilningi, leikni og fimi í reikniaðgerðum og því er mikilvægt að undanskilja engan þessara þátta í stærðfræðikennslu.
Huga þarf að ýmsu við val á atriðum í próf. Áður en að því kemur að velja hvaða prófatriði rata fyrir augu próftaka hefur fjöldinn allur farið í gegnum ferli forprófana, greiningar og endurskoðunar, ásamt bæði innri og ytri rýni. Tryggja þarf að inntakstafla prófsins sé uppfyllt og hugað að jafnvægi á ýmsum sviðum.
Við valið þarf að gæta þess að prófið búi yfir breidd í þyngd prófatriða: þung, miðlungs og létt. Þá þarf að tryggja að tölfræðileg aðgreining sé nægileg. Ef prófatriði uppfyllir ekki skilyrði um þyngd og tölfræðilega aðgreiningu er það ekki notað í próf.
Einnig þarf að viðhafa jafnvægi milli prófatriða sem fela í sér rauntengd viðfangsefni við þau sem eru alfarið staðsett í heimi stærðfræðinnar. Í rauntengdum viðfangsefnum er leitast við að höfða ýmist til ýmissa áhugasviða eða daglegs lífs nemenda á einhvern hátt sem og getu þeirra til aðgerða með þekkingu sinni á stærðfræði í samræmi við aldur og þroska.
Ekki er komist hjá því að sum prófatriði í stærðfræði innihaldi stuttan lestexta. Snið texta í prófatriðum í stærðfræði er allajafna auðlesinn texti með stuttum málsgreinum og tíðum línuskilum, sér í lagi hjá yngri nemendum. Magn texta getur verið meira hjá eldri nemendum þar sem þess er þörf. Þó er ávallt stefnt að því að lestexti sé eins hnitmiðaður og mögulegt er til að hæglæsi verði ekki að hindrun fyrir nemendur til að sýna fram á færni sína í stærðfræði. Meðalfjöldi orða í hverju prófatriði er um það bil 12–15 orð.


