Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók

©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði

    Reglubundin fyrirlögn stöðu- og framvinduprófa í stærðfræði gefur skólum, forsjáraðilum og nemendunum sjálfum upplýsingar um stöðu og þróun í stærðfræðinámi þeirra. Niðurstöður prófanna fela í sér vísbendingar um almenna færni nemandans í stærðfræði samkvæmt mikilvægum færniþáttum og flokkum inntaks í aðalnámskrá grunnskóla: tölum og reikningi, algebru, tölfræði og líkindum svo og rúmfræði og mælingum.

    Stærðfræðinám á grunnskólastigi felur í sér grundvallarfærni fyrir nútímasamfélag. Góð færni í stærðfræði opnar dyr til samfélagsþátttöku og frekara náms en slök færni getur orðið að hindrun sé ekki gripið inn í. Góð færni felst meðal annars í skilningi og þekkingu á hugtökum sem og því að beita hugtökum eða aðferðum til að leysa stærðfræðileg og rauntengd viðfangsefni. Hluti af því reynir á að greina, túlka og rökstyðja til að komast að niðurstöðu. Góð færni er einnig háð talnaskilningi, leikni og fimi í reikniaðgerðum og því er mikilvægt að undanskilja engan þessara þátta í stærðfræðikennslu.

    Af greinasviðum grunnskólans er stærðfræði með þeim umfangsmestu. Það birtist meðal annars í því að fjöldi hugtaka í Hugtakasafni í stærðfræði sem MMS gefur út hleypur á hundruðum. Kennsla í stærðfræði gengur því að talsverðum hluta út á að styrkja skilning nemenda á hugtökum. Rökleg og lóðrétt uppbygging stærðfræðinnar sem faggreinar er lykilatriði í markvissri kennslu sem miðar að hugtakaskilningi. Að sama skapi veldur hún því að ef nemendur skortir vissar stoðir í skilningi sínum þá getur vandi byrjað að vinda upp á sig eftir því sem líður á skólagöngu þeirra. Með því að fylgjast náið með námsframvindu nemenda og vinna jöfnum höndum að kennslu til skilnings og þjálfun í þeim aðferðum sem við á hverju sinni má verulega auka líkur á að nemendur öðlist þá hæfni í stærðfræði sem til er ætlast samkvæmt námskrá (Rittle-Johnson og Schneider, 2014).

    Til að hringrás mats og kennslu skili árangri þarf hver einasti hluti hringrásarinnar að vera virkur (sjá nánar í stuðningsefni aðalnámskrár). Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði snúa að langtímasamhengi skólastarfsins. Þau veita bæði upplýsingar um almenna stöðu nemenda á tilteknum tímapunkti (í þeim árgangi þegar próf er þreytt) og hvernig framvinda hans í námi er yfir lengri tíma. Þessar upplýsingar eru dýrmætar fyrir skóla til að styrkja vel upplýstar ákvarðanir um skipulag náms og kennslu í stærðfræði fyrir alla þá flóru sem einkennir fjölbreyttan nemendahóp grunnskólanna. Til eru þeir nemendur sem þurfa auknar áskoranir og meira krefjandi verkefni í sínu stærðfræðinámi. Einnig eru til þeir nemendur sem þurfa aukinn stuðning, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma. Sá aukni stuðningur getur eftir atvikum verið í formi inngrips með smærri hóp eða einstaklingskennslu. Gjarnan nægir tímabundið inngrip til að koma nemanda aftur á réttan kjöl í að fylgja sínum árgangi að í námi. Ein slök frammistaða á stöðu- og framvinduprófi leiðir því alls ekki sjálfkrafa til þess að þörf sé á sértækum stuðningi til langs tíma, þó vissulega geti raunin stundum verið sú að þess sé þörf. Margt þarf að taka inn í reikninginn við slíkar ákvarðanir, en ávallt með námslega hagsmuni nemanda að leiðarljósi. Í því geta upplýsingar um framvindu í frammistöðu nemanda milli ára leikið hlutverk.

    Af öllum hlutum hringrásar mats og kennslu er stigskipt kennsla og stuðningur einn sá umfangsmesti. Í þessari handbók rúmast aðeins brotabrot af því sem kann að gagnast starfsfólki skóla við þennan hluta faglegs starfs með nemendum í stærðfræði. Til að minnast á örfáar bjargir hér má fyrst nefna líkan fyrir stigskipta kennslu barna í fjögur stig sem miðar að bæði nákvæmni og fimi með áherslu á alhæfingu og þrautalausnir á seinni stigunum (Reed og Luiselli, 2011). Af almennari björgum má nefna tvær nýlegar bækur á íslensku sem miða að miklu leyti að stærðfræðikennslu: Annars vegar íslenska bók með gæði kennslu sem útgangspunkt, meðal annars endurgjöf, vitsmunalega áskorun og samræðumiðaða kennslu (Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson, 2025), og hins vegar þýdda bók um hugsandi skólastofu í stærðfræði með 14 aðferðum sem styðja við nám nemenda (Liljedahl, 2025).

    Nú þegar þessi fyrsta útgáfa handbókar fyrir stöðu- og framvindupróf Matsferils lítur dagsins ljós er um að ræða upphaf langtímaverkefnis sem er Matsferill í stærðfræði. Stöðu- og framvinduprófin eru mjög mikilvægur hluti hans sem veitir skólum gagnlegar upplýsingar fyrir skipulag náms og kennslu í stærðfræði fyrir 4.–10. bekk. Aðrir hlutar Matsferils í stærðfræði, svo sem skimunarpróf fyrir yngsta stig og matstæki í verkfærakistu, munu einnig gegna mikilvægu hlutverki við að styðja við nám og kennslu í stærðfræði fyrir allt grunnskólastigið. Í næstu útgáfu þessarar handbókar má vænta þess að hér verði unnt að tengja hlutverk þeirra við stöðu- og framvinduprófin með nákvæmari hætti.