Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi
Með því að leggja stöðu- og framvinduprófin reglulega fyrir fást upplýsingar um stöðu og þróun lesskilnings nemenda. Niðurstöður þeirra gefa vísbendingar um það að hve miklu leyti nemandinn er almennt fær um að nýta sér lestur og málskilning sinn til að tileinka sér innihald texta námsefnis og að njóta ávinnings af lestri í fjölbreyttum tilgangi.
Lesskilningur er mikilvæg undirstöðufærni í námi. Góður lesskilningur er forsenda þess að hægt sé að skilja og tileinka sér efni texta á meðan slakur lesskilningur getur haft víðtæk áhrif á framvindu og frammistöðu í námi. Góður lesskilningur felst í skilningi einstakra orða, setninga og málsgreina, svo og skilningi stærri heilda eins og efnisgreina eða kafla sem síðan þarf að fella saman við eigin hugmyndir, þekkingu og sjónarmið. Góður lesskilningur er byggður á góðum málskilningi sem aftur hvílir til dæmis á góðum hugtakaskilningi og fjölbreyttum orðaforða sem þarf að fá að vaxa og dafna í takt við hækkandi aldur nemenda og stigvaxandi kröfur í námi. Góður lesskilningur er einnig háður góðri lestrar- eða umskráningarfærni og því mikilvægt að hugað sé að þessum þáttum læsis í lestrarkennslu.
Að mörgu er að hyggja við val á próftextum. Huga þarf að því að viðfangsefni sé áhugavert með tilliti til aldurs og áhugasviðs flestra nemenda, og að þyngd prófsins sé í samræmi við almenna lestrarfærni nemenda á tilteknum aldri. Tryggja þarf að skilningur á inntaki textanna séu ekki háður bakgrunnsþekkingu sem er ef til vill ekki á færi allra vegna ólíks menningarbakgrunns en einnig að bakgrunnsþekking á viðfangsefni geti ekki verið svo mikil að ekki reynist þörf á að lesa hluta eða allan textann. Einnig þarf að velja texta úr fjölbreyttum textategundum (bókmennta-, upplýsinga- og rökfærslutextar) þar sem framsetning efnis er ólík innan tegundanna, tilgangur með ritun þeirra margs konar og hugrænar kröfur mismunandi.
Textar sem valdir eru fyrir lesskilningspróf þurfa að vera nokkuð efnismiklir svo hægt sé að útbúa góð prófatriði. Þess vegna henta stuttir textar oft ekki en við gerð stöðu- og framvinduprófsins voru viðmið sambærilegra, erlendra og alþjóðlegra prófa höfð til hliðsjónar. Eðli málsins samkvæmt eru próftextar fyrir yngri nemendur að jafnaði nokkuð styttri en fyrir þá eldri.
Öll prófatriði hafa farið í gegnum forprófum til að kanna tölfræðilega aðgreiningu og hvort þau séu of þung eða of létt fyrir hvern aldur. Ef í ljós kom við forprófun að prófatriði uppfyllti ekki ákveðin skilyrði var það ýmist endurskoðað og forprófað aftur, eða það ekki notað í próf.
Fjöldi próftexta í stöðu- og framvinduprófi fyrir 4. og 5. bekk eru tveir en í öðrum árgöngum þrír. Hlutfall upplýsinga- og rökfærslutexta hækkar eftir því sem nemendur verða eldri. Prófakerfið úthlutar prófútgáfum handahófskennt á hvern nemanda og spurningar og svarmöguleikar birtast einnig í handahófskenndri röð. Það er gert til að koma í veg fyrir að nemendur freistist til að kíkja yfir öxl samnemanda ef þeir eru í vafa með svör. Tvær til þrjár prófútgáfur eru í hverjum árgangi.

