Stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi: Handbók
Þjónustuaðili:
©2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Öll réttindi áskilin
1. útgáfa 2026
Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi
Með því að leggja stöðu- og framvinduprófin reglulega fyrir fást upplýsingar um stöðu og þróun lesskilnings nemenda. Niðurstöður þeirra gefa vísbendingar um það að hve miklu leyti nemandinn er almennt fær um að nýta sér lestur og málskilning sinn til að tileinka sér innihald texta námsefnis og að njóta ávinnings af lestri í fjölbreyttum tilgangi.
Lesskilningur er mikilvæg undirstöðufærni í námi. Góður lesskilningur er forsenda þess að hægt sé að skilja og tileinka sér efni texta á meðan slakur lesskilningur getur haft víðtæk áhrif á framvindu og frammistöðu í námi. Góður lesskilningur felst í skilningi einstakra orða, setninga og málsgreina, svo og skilningi stærri heilda eins og efnisgreina eða kafla sem síðan þarf að fella saman við eigin hugmyndir, þekkingu og sjónarmið. Góður lesskilningur er byggður á góðum málskilningi sem aftur hvílir til dæmis á góðum hugtakaskilningi og fjölbreyttum orðaforða sem þarf að fá að vaxa og dafna í takt við hækkandi aldur nemenda og stigvaxandi kröfur í námi. Góður lesskilningur er einnig háður góðri lestrar- eða umskráningarfærni og því mikilvægt að hugað sé að þessum þáttum læsis í lestrarkennslu.
Eitt af markmiðum stöðu- og framvinduprófanna er að kanna að hvaða marki hæfniviðmiðum aðalnámskrár hefur verið náð og hver þróun lesskilnings nemenda hefur verið. Hæfniviðmið aðalnámskrár stýra því inntaki prófsins eða því sem er prófað.
Við síðustu endurskoðun aðalnámskrár (Mennta- og barnamálaráðuneytið, 2024) voru gerðar töluverðar breytingar á íslenskuhluta hennar. Meðal annars var lestur og lesskilningur aðskilinn frá bókmenntahluta námskrárinnar og mynda nú sjálfstæðan kafla. Þessi breyting endurspeglar breytt sjónarmið og dregur lesskilning fram sem eina af undirstöðum 21. aldar færni. Undirflokkar kaflans eru Lesfimi, lestraraðferðir, orðaforði, lesskilningur og lestrarmenning og lýsir hann þar með hæfninni sem fólgin er í læsi með nákvæmari hætti en áður. Er það til mikilla bóta að fá skýrari og meira lýsandi hæfniviðmið sem eru til þess fallin að veita skólum betri leiðsögn varðandi inntak og áherslur í lestrarkennslu og gera þeim kleift að fylgjast betur með stöðu og framvindu lestrarnáms nemenda sinna.

