Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skilgreininga- og flokkunarkerfi í barnavernd

Útgáfa 3 (2022)

    4. Áhættuhegðun barns

    Áhættuhegðun barns er skilgreind sem hegðun sem brýtur gegn þeim viðmiðum og reglum sem gilda í umhverfi barnsins og er líkleg til að valda barninu sjálfu eða öðrum skaða.

    Barn neytir áfengis eða annarra efna sem eru líkleg til að valda því skaða. Hér er einkum átt
    við ungmenni, ef um yngri börn er að ræða væri að jafnaði rétt að flokka slíka neyslu undir
    vanrækslu foreldra eða umönnunaraðila, þar sem yngri börn ættu ekki að hafa aðgengi að
    slíkum efnum.

    Hér er um að ræða öll lögleg og ólögleg vímuefni, einnig lyfseðilsskyld lyf sem eru tekin án
    fyrirmæla læknis og önnur efni sem eru líkleg til að valda barninu skaða.

    Barn neytir annarra efna sem geta haft áhrif á heilsu og velferð þess án þess að vera
    vímuvaldandi.

    Dæmi eru eftirfarandi:

    • Ofneysla barna á koffíndrykkjum sem geta haft slæm heilsufarsleg áhrif. Hér er einkum átt
      við ung börn eða þegar magn koffínneyslu fer yfir heilsuverndarviðmið.

    • Notkun barns á vörum sem innihalda nikótín. Hér getur verið um að ræða ýmsar tegundir
      tóbaks ætlaðar til reykinga, munntóbak, rafrettur (veipa), neftóbak eða neysla á öðrum vörum
      sem innihalda nikótín.

    • Inntaka lyfja, lyfseðilsskyldra eða í lausasölu, sem eru ekki til þess fallin að framkalla vímu
      en barnið tekur inn viljandi.