Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Ritunarramminn – handbók um notkun

Hér má finna PDF útgáfu af handbókinni.


Ritunarrammann má nálgast á Læsisvefnum.

    Notkun Ritunarrammans

    Kennari og nemendur þurfa að hafa sameiginlegan skilning á markmiðum náms og matsviðmiða og hvað er til marks um að tiltekinni hæfni sé náð. Í leiðsagnarnámi er lögð áhersla á að notkun á niðurstöðum námsmats og ígrundun stöðu út frá viðmiðum sé í raun mikilvægari en niðurstöður sjálfs námsmatsins. Þannig verða niðurstöðurnar vegvísir sem beina námi nemenda fram á við; gefa hugmyndir að næstu skrefum í kennslu og hvaða markmið nemendur ættu að setja sér til aukins árangurs (Nanna K. Christiansen, 2021). Tilgangurinn með náminu verður jafnframt augljósari og nemandi færari um að axla ábyrgð á því sjálfur. Þessi nálgun er í samræmi við áherslur aðalnámskrár en þar er lögð áhersla á að nemendur fái reglulega tækifæri til að velta eigin námi fyrir sér, setja sér markmið og vera ljóst hvaða viðmið eru lögð til grundvallar í námsmati (Mennta- og barnamálaráðuneyti, 2024).

    Í öllum tilvikum og óháð aldri nemenda er mikilvægt að kennarar kynni sér framvindurammana vel til að átta sig á stígandanum sem þarf að verða í færni innan hvers efnisþáttar Ritunarrammans. Þannig er hægt að fylgjast með því hvað nemandinn á að vera búinn að tileinka sér og hvert er stefnt.

    Mikilvægt er að kennarar kynni sér einnig vel alla undirþætti ritunar og átti sig á stígandanum sem þarf að eiga sér stað upp allan grunnskólann. Umfjöllun um þessa þætti má finna í þessari handbók. Til að fá grófa yfirsýn er fljótlegt að skoða framvinduramma allra efnisþátta rammans. Þannig geta kennarar séð hvað nemendur eiga að vera búnir að tileinka sér og hvert ætti að stefna.