Fara beint í efnið

Leiðbeiningar um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu

Þjónustuaðili:

Í leiðbeiningum þessum er leitast við að skýra þær reglur sem gilda um virðisaukaskatt af ferðaþjónustu og annarri ferðatengdri þjónustu. Til þjónustu af þessum toga má nefna gistiþjónustu, sölu á veitingum og fólksflutninga.

Útgáfa: 25.1.2025

    4 Bifreiða- og ökutækjaleigur o.fl.

    Útleiga bifreiða og annarra ökutækja er virðisaukaskattsskyld í 24% skatthlutfallinu. Einnig er önnur leiga lausafjár í atvinnuskyni virðisaukaskattsskyld í sama skatthlutfalli, þar með talin hestaleiga, vélsleðaleiga og leiga á fjórhjólum þegar ekki er um að ræða leigu í tengslum við skipulagða ferð undir leiðsögn fararstjóra.