Fara beint í efnið

Leiðbeiningar fyrir tæknitengiliði skóla vegna stöðu- og framvinduprófa Matsferils

    Hlutverk tæknitengiliða

    Tæknitengiliður skóla gegnir lykilhlutverki í undirbúningi og framkvæmd stöðu- og framvinduprófanna. Meginverkefni tæknitengiliða eru eftirfarandi:

    • Yfirsýn yfir tækjabúnað: Að tryggja að skólinn eigi nægjanlegan fjölda tækja sem uppfylla tæknikröfur fyrir prófin.

    • Uppsetning hugbúnaðar: Að sjá til þess að nauðsynlegur hugbúnaður (Safe Exam Browser eða Kiosk stillingar) sé rétt uppsettur á öllum próftökutækjum tímanlega fyrir prófdag.

    • Aðstoð við skipulag: Að vinna með stjórnendum að niðurröðun prófdaga með tilliti til fjölda tækja og netgetu skólans.

    • Aðstoð við innskráningu: Að leiðbeina kennurum hvernig á að aðstoða nemendur við að skrá sig inn í prófið á prófdegi.

    • Viðbragð og stuðningur: Að vera til taks á meðan próf standa yfir (sérstaklega milli 08:00 og 14:30) til að leysa tæknileg vandamál sem upp geta komið.

    • Samskipti við MMS vegna tæknilegra örðugleika sem ekki leysast innan skóla:

    Senda tölvupóst á hjalp@midstodmenntunar.is
    Hringja í síma 514-7500

    Efni kaflans

    Hér er hægt að prenta gátlistann út 

    Tímanlega fyrir próf (undirbúningur)

    • Tækjaúttekt: Tryggja nægjanlegan fjölda tækja.

    • Uppfærslur: Stýrikerfi og vafrar uppfærðir (ChromeOS, iOS, Windows).

    • Uppsetning hugbúnaðar:

      • Chromebook: Kiosk stilling virkjuð í Admin Console.

      • iPad/Win: Safe Exam Browser (SEB) uppsettur.

    • Netprófun: https://taekjabunadur.mms.is

    • Þýðingarforrit í stærðfræðiprófi: Uppsetning á aukatækjum í læstum vafra (t.d. Guided Access í iPad). 

    • Heyrnartól: Að tryggja nægan fjölda og yfirfara ástand heyrnartóla vegna upplestrar í stærðfræðiprófi.

    Degi fyrir próf (lokaeftirlit)

    • Hleðsla: Öll tæki sett í hleðslu.

    • Prufa: Kveikt á einu tæki af hverri tegund og staðfest að prófakerfið opnist.

    Á prófdegi (morgunverk)

    • Dreifing: Tæki og tól komin í stofur fyrir próf.

    • Viðbúnaður: Tæknitengiliður til taks á meðan próf eru í gangi. 

    • Lykilorð út úr SEB: 1234.

    • Varabúnaður: 2-3 varatölvur tilbúnar og kveikt á þeim.