Fara beint í efnið

Hugbúnaðarrammi Fjársýslunnar

Þjónustuaðili:

Reynsla Fjársýslunnar hefur sýnt fram á vöntun á heildstæðum leiðbeiningum fyrir opinbera aðila þegar kemur að fjárfestingu í hugbúnaði. 

Því var brugðið á það ráð að setja saman leiðarvísi fyrir opinbera aðila við kaup á hugbúnaði, með það að markmiði að einfalda ferlið og draga úr áhættu.

Leiðarvísirinn fjallar um mikilvægi þarfagreiningar, markmiðssetningar og varna gegn birgjalæsingu, ásamt því að útlista tæknilegar og lagalegar kröfur sem ber að hafa í huga við val á mismunandi tegundum hugbúnaðar, þar á meðal staðlaðar, sérlausnir og Power Platform.

Hann veitir einnig innsýn í mótun útboðsgagna, greiðslufyrirkomulags og krafna er varða þróun, prófanir og skil hugbúnaðar.

Byggt er á lærdómi Fjársýslunnar af fyrri útboðum, gögnum frá Stafrænu Íslandi og Fjármálaráðuneytinu, gögnum frá Norskum, Breskum og Dönskum systurstofnunum Ríkiskaupa ásamt reynslu höfundar af hugbúnaðarþróun.

    4.1. Sértækar lágmarkskröfur eftir tegund lausna

    Ef nauðsyn er á að bæta við viðbótum eða sérsmíða einingu svo staðlaði hugbúnaðurinn uppfylli allar/flestar kröfur og þarfir kaupanda þarf að hafa það í huga:

    • að seljandi á, í flestum tilfellum þær einingar og viðbætur sem þróaðar eru innan staðlaða hugbúnaðarins.

    • að kaupandi þarf að kanna hvers eðlis viðbótin er og hvar hún eigi heima

      • Innan staðlaðrar lausnar - seljandi er eigandi viðbótana og getur selt/nýtt hjá öðrum viðskiptavinum. Kröfur er varða staðlaðar lausnir eiga hér við.

      • Utan staðlaðrar lausnar - seljandi þróar ekki viðbætur við lausn sína eða kaupandi vill annan aðila til að þróa viðbótina.

    • að stundum er ódýrara að nýta aðrar tegundir hugbúnaðar eða mismunandi birgja af sama hugbúnaði til að uppfylla þörfina. Eða blanda tegundum hugbúnaðar saman.