Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Hugbúnaðarrammi Fjársýslunnar

Þjónustuaðili:

Reynsla Fjársýslunnar hefur sýnt fram á vöntun á heildstæðum leiðbeiningum fyrir opinbera aðila þegar kemur að fjárfestingu í hugbúnaði. 

Því var brugðið á það ráð að setja saman leiðarvísi fyrir opinbera aðila við kaup á hugbúnaði, með það að markmiði að einfalda ferlið og draga úr áhættu.

Leiðarvísirinn fjallar um mikilvægi þarfagreiningar, markmiðssetningar og varna gegn birgjalæsingu, ásamt því að útlista tæknilegar og lagalegar kröfur sem ber að hafa í huga við val á mismunandi tegundum hugbúnaðar, þar á meðal staðlaðar, sérlausnir og Power Platform.

Hann veitir einnig innsýn í mótun útboðsgagna, greiðslufyrirkomulags og krafna er varða þróun, prófanir og skil hugbúnaðar.

Byggt er á lærdómi Fjársýslunnar af fyrri útboðum, gögnum frá Stafrænu Íslandi og Fjármálaráðuneytinu, gögnum frá Norskum, Breskum og Dönskum systurstofnunum Ríkiskaupa ásamt reynslu höfundar af hugbúnaðarþróun.

    4.1. Sértækar lágmarkskröfur eftir tegund lausna

    Hægt er í mörgum tilfellum að nýta virkni annars hugbúnaðar, kerfis eða gagnasafns með því að tengja það við stöðluðu lausnina í gegnum API tengingu með viðkomu í millilagi eða gegnum power platform lausn.

    Ef um ákveðna nýja virkni hluta er að ræða sem ekki eru tengdir með API við stöðluðu lausnina heldur sérþróaðir af seljanda þarf að gera kröfur um eftirfarandi:

    • Fá aðgang að tæknilýsingu og skjölun sérsmíðaða virknihlutans er snýr að viðskiptavininum.

    • Ef seljandi notast við einingar (modules) , innskot (plugins) og framlengingar (extensions) frá þriðja aðila er krafa að kaupandi sé skráður eigandi/leigjandi.

    • Ef það er ekki hægt þarf kaupandi að tryggja að hann hafi rétt á að:

      • Nota einingarnar eða gagnasöfnin

      • Breyta einingum eða gagnasöfnum (kaupandi sjálfur, 3 aðili eða verktaki).

      • Taka einingarnar / gagnasöfnin ef kaupandi vill selja hugbúnaðinn.

      • Framselja þessi réttindi til allra þeirra sem þig lystir.

    Til að mynda falla ERP, CRM og BI kerfi undir þennan flokk ásamt flest gagnavörslukerfi.