Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Handbók um notkun lesfimi- og stuðningprófa Matsferils

Lesfimiprófið er fyrsta samræmda stöðu- og framvinduprófið sem fer inn í nýtt stafrænt viðmót Matsferils. Þrátt fyrir að notkun prófsins hafi verið og sé valkvæð hefur það að jafnaði verið lagt fyrir um 90% grunnskólanema á landinu enda veitir það mikilvægar upplýsingar um stöðu og þróun lestrarfærni nemenda. Stuðningsprófin, eða orðleysulestur og mat á sjónrænum orðaforða, verða einnig aðgengileg í Matsferli enda eiga niðurstöður þeirra að veita nánari skýringu á stöðu undirstöðuþátta í lestri ef gengi á lesfimiprófi er undir æskilegum mörkum.

    Stuðningspróf MMS

    Stuðningspróf Matsferils eru tvö: Mat á lestri orðleysa og mat á sjónrænum orðaforða. Prófin veita nánari upplýsingar um stöðu grunnaðferða í lestri en markviss notkun stuðningsprófanna getur einnig gefið vísbendingar um hvaða nemendur það eru sem e.t.v. glíma við undirliggjandi lestrarvanda.

    Stuðningsprófin eru greinandi próf sem mælst er til að kennarar leggi fyrir þá nemendur sem eru undir meðaltali á lesfimiprófi eða fá mælitölurnar 1-7 á lesfimiprófi. Notkun stuðningsprófanna er sérstaklega mikilvæg fyrir nemendur á yngri stigum þar sem lestrarfærnin er að verða til og mikilvægt að kennarar hafi góðar upplýsingar um framvindu lestrarnáms hjá öllum nemendum sínum.

    Mat á lestri orðaleysa er ein besta leiðin til að meta þekkingu nemanda á tengslum bókstafs og hljóðs. Þessi þekking er undirstaða þess að nemandi geti beitt hljóðaaðferðinni og umskráð texta af öryggi. Á þessu prófi lesa nemendur merkingarlaus bullorð (orð eins og illspur, fébi, bruppa) sem lúta hljóðkerfi íslenskunnar en þar sem orðin þýða ekkert getur nemandinn ekki stutt sig við merkingu þeirra til að umskrá textann.

    Öryggi við beitingu hljóðaaðferðar er forsenda þess að nemandi geti byggt upp sjónrænan orðaforða og sjálfvirkur lestur orðmynda er forsenda góðrar lesfimi. Próf í orðleysulestri er 40 atriða einstaklingspróf sem tekur 1-2 mínútur í fyrirlögn á hvern nemanda. Fái nemandi slakar niðurstöður á þessu prófi þarf að leggja fyrir hann stafakönnun og kanna þekkingu hans á hljóðum bókstafa og ritun þeirra.