Fara beint í efnið

Handbók um notkun lesfimi- og stuðningsprófa Matsferils

Lesfimiprófið er fyrsta samræmda stöðu- og framvinduprófið sem fer inn í nýtt stafrænt viðmót Matsferils. Þrátt fyrir að notkun prófsins hafi verið og sé valkvæð hefur það að jafnaði verið lagt fyrir um 90% grunnskólanema á landinu enda veitir það mikilvægar upplýsingar um stöðu og þróun lestrarfærni nemenda. Stuðningsprófin, eða orðleysulestur og mat á sjónrænum orðaforða, verða einnig aðgengileg í Matsferli enda eiga niðurstöður þeirra að veita nánari skýringu á stöðu undirstöðuþátta í lestri ef gengi á lesfimiprófi er undir æskilegum mörkum.

    Fyrirlögn lesfimi- og stuðningsprófa

    Það er mikilvægt fyrir kennara að kynna sér vel atriðin í undirbúningskafla handbókarinnar til að auka líkur á að fyrirlögnin gangi hratt og snurðulaust fyrir sig. Einnig er minnt á æfingaprófið fyrir lesfimina í Matsferli, sérstaklega fyrir þá kennara sem hafa ekki lagt lesfimiprófið fyrir áður.

    Þar sem annar megintilgangur prófanna er að meta lestrarnákvæmni teljast öll frávik frá réttri umskráningu texta sem villa.

    Dæmi um frávik:

    • Orð rangt lesið – nemandi þekkir ekki orð eða framburð þess.

    • Brottfall hljóða úr orði – ekki öll hljóð orðsins lesin.

    • Hluti samsetts orðs rangt lesinn – allt orðið telst rangt lesið.

    • Orðum víxlað – bæði orðin teljast rangt lesin.

    • Mislestur á smáorðum, t.d. á/í, að/af.

    • Hljóðum bætt inn í orð, t.d. ákveðnum greini bætt við nafnorð (t.d. maður/maðurinn).

    Ef nemandi fer línuvillt er hægt er að gera hlé á tímatöku, beina honum á réttan stað, hefja tímatökuna aftur og komast þannig hjá því að merkja öll orð rangt lesin í línunni eða línunum sem hann sleppti. Ef nemanda hættir til að tapa staðsetningu sinni í texta getur verið gott fyrir hann að hafa fingur eða blýant undir texta til að koma í veg fyrir að hann villist af leið.

    Nemendum, sem eru fljótir að umskrá texta, hættir stundum til að lesa svo hratt að vart greinast orðaskil. Það er í sjálfu sér ekki nauðsynlegt að prófa þessa nemendur en sé það gert þarf að ítreka við þá að lesa þannig að þeir virði greinarmerki og kennari greini orðaskil.