Fara beint í efnið

Almennt um málsmeðferð vegna læknismeðferðar erlendis

Sérfræðingar Sjúkratrygginga meta hvort skilyrði um læknismeðferð erlendis séu uppfyllt.

Sjúkratryggður einstaklingur sem hyggst fara erlendis í læknismeðferð þarf að huga að ýmsu áður en lagt er af stað. Skoða þarf undir hvaða málaflokk viðkomandi læknismeðferð flokkast, hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt og hvaða gögnum þarf að skila.

Ef nauðsynleg heilbrigðisþjónusta er ekki í boði á Íslandi, en sjúkratryggðum er brýn nauðsyn að fá hana, þá sækir læknir hans um til Sjúkratrygginga og umsóknin verður „siglinganefndarmál“. Sé hún samþykkt eru greiddur meðferðarkostnaður, ferða- og uppihaldskostnaður ásamt kostnaði vegna fagfylgdar eða annarrar fylgdar sem læknir vottar að nauðsynleg sé, sbr. reglugerð nr. 712/2010. 

Ef nauðsynleg heilbrigðisþjónusta er ekki veitt á Íslandi innan tímamarka sem réttlæta má læknisfræðilega ef mið er tekið af núverandi heilsufarsástandi hins sjúkratryggða og líklegri framvindu sjúkdómsins sbr. 20. gr. EB reglugerðar nr. 883/2004, sbr. 20. gr.  innlendrar reglugerðar nr.  442/2012, sem er í gildi á Íslandi frá maí 2012, þá þarf læknir hins sjúkratryggða að staðfesta bið á þar til gerðu umsóknarblaði og umsóknin verður „biðtímamál“. Sé hún samþykkt er greiddur meðferðarkostnaður.  

Heilbrigðisþjónusta yfir landamæri innan EES lands. Tilskipun Evrópusambandsins um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri, svokölluð „ landamæratilskipun" um rétt sjúklinga til að sækja sér heilbrigðisþjónustu til annarra aðildarríkja EES-samningsins og fá endurgreiddan útlagðan kostnað sem svarar því að samsvarandi þjónusta hefði verið veitt hér á landi, hefur verið innleidd á Íslandi. Lögin tóku gildi 1. júní 2016. Byggt er á tilskipun Evrópusambandsins nr. 2011/24/ESB. 



Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar